Hlínsa

Thursday, November 16, 2006

Kína dúllurnar í Edinborg
Það eru nokkrir Kkínverjar með mér í bekk sumir bara mjög venjulegir og fitta bara þokkalega inn í samfélagið. Tala bara þokkalega ensku og eru bara frekar vestrænir eins og hún Lulu og hann She (þetta finnst kannski engum fyndið nafn nema fólkinu í uogb sem fóru með mér til Kína). Samt er Lulu ekki alveg búin að aðlagast veðrinu hérna. T.d. um daginn þá var smá rok og rigning og ég hitti hana á bókasafninu og spurði hvernig henni gengi með verkefnið. Hún sagði að henni gengi bara vel en hún yrði að fara drífa sig heim því það væri komið svo vont veður, þið getið ekki ímyndað ykkur hvað ég hló mikið inn í mér, það var svona 1m/s og soldil rigning. Svona veður sem að regnhlífin kemur ekki að notum en fíkur ekki. Svo er einn soldið fyndin Kínagæi með mér í tíma sem kemur alltaf of seint og kemur alltaf inn um framdyrnar og þykist læðast en tekst það alltaf svo illa. Hann er held ég svona gaur sem er of klár. En fyndnustu Kínverjarnir eru stelpurnar tvær sem eru með mér í hóp í project management. Við áttu að vera 6 saman í hóp og við vorum búin að koma okkur 5 saman og svo komu þær. Kennarinn kom og sagði að það gætu bara verið 6 saman og þær kinkuðu og færðu sig ekker þannig að við enduðum á að vera 7, sem var ekkert slæmt. Við erum búin að hittas 2 sinnum og í bæði skiptin hafa þær ekki sagt orð, þetta er sko umræðu hópur. Soldið fyndið að vera að læra project management og eiga í vandræðum að kynnast nýju fólki og tala bara yfir höfuð. Ímyndið ykkur bara að mæta í vinnu og það er nýr yfir maður á svæðinu og það er hún cheche en hún talar ekki og á erfitt með að vinna með öðrum en henni vinkonu sinni henni lula.

Tuesday, November 14, 2006

Verkefna dagar framundan :S
Skólinn á milljón, á að skila þremur verkefnum þann 8. des n.k. sem er síðasti skóladagurinn hjá mér. Því meira sem ég reyni að gera í þessum verkefnum kemst ég að því hvað ég er í lélegri æfingu að skirfa svona dótaraí. Síðasta ritgerð sem ég gerði var í ísl 403 sem er soldið langt síðan um c.a. 7 ár. Vá ég held að ég hafi fengið nokkrar hrukkur við tilhugsuna um hvert tíminn hefur farið. Mér finnst ekki miki lengra en vika síðan ég og strúna vorum að fá lánuð verkefnin hjá greifið gömlu konunni sem var með okkur í íslensku. Æi hún var svo góð við okkur, við aldrei búnar að læra heima en hún alltaf og laumaði alltaf bókinni til okkar þegar við áttum að lesa svörin. En bara smá upprifjun af lífi Hlínar
Það er soldið fyndið fólk hér í skólanum og yfirleitt sama fólkið á sömu stöðunum í skólanum. T.d. læri ég alltaf á 4. hæðinni á bókasafninu ásamt d&s, Norsurunum/Svíjunum (veit ekki hvort þeir eru, held samt svíjar því þeir eru meira þannig klæddir) og svo kyssu parinu. Þau eru soldið mikið fyndin. Stelpan lærir hér og svo kyssir kærastinn hennar hana. Ekki einn koss heldur er þetta bara í svona klukku tíma. Hún situr og lærir og hann á stól við hliðina á henni og kyssir hana á kinnina. Ég væri búin að kíla þennan gaur ef hann væri kærastinn minn. Svo er annað par hérna í skólanum en ekki þó á bókasafninu sem er knúsi fólkið. Búin að labba framhjá þessu fólki nokkrum sinnum, bara venjulegt fólk en það er alltaf að knúsast. Ekki bara knús heldur er eins og að þau séu að fara að kveðjast því hann er að fara í stríð. Halló hvað er að fólki tímarnir hér eru í mestalagi 3 tímar.
Á ekki að hljóma eins og ég mjög bitur ;) over and out Hundakonan mikla